
Ég vil tilnefna Eddu Arinbjarnar og Þórð Kristleifsson Húsafelli 3 og Pál Guðmundsson og Þorstein Guðmundsson Húsafelli 2 sem eru af alúð að fegra umhverfi í kringum bæina, listasvæði Páls og Húsafellskapellu. Þau eru að gera menningu og sögu Húsafells hátt undir höfði og Gömlu sporunum sýnd virðing og natni. M.a. hefur eldhúskofi verið byggður upp endurhlaðinn og gerður í ævagömlum tóftum. Kirkjugarðurinn vel hirtur með framtíðarsýn um að merkja vel leiði og umhverfi.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation