Göngudagur um Kársnesið
Árlega verði haldin skemmtidagur á göngustígnum meðfram sjónum á Kársnesi. Matarvagnar, sölubúðir, sem og ýmislegt eintaklings- eða félagaframtak ss bakstur, dans, fimleikasýning, töfrabrögð ofl. ofl. Hægt verði ađ ganga allan Kársneshringinn og alltaf sé stutt í næstu uppákomu/viðburð. Setjast niður við sölubúðir kaupa sér td kaffibolla eða hafa með sér teppi og nesti. Sveitaleg og notaleg stemning á þessum yndislega og sólríka gönguhring. Kvöldganga/stemning myndi líka ganga vel upp.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation