Skrá yfir félög og samtök sem starfa á Flateyri

Skrá yfir félög og samtök sem starfa á Flateyri

Væri hægt að fá til dæmis Lýðskólanema til að gera skrá yfir félög og samtök sem starfað hafa á Flateyri? Kanna yrði hver markmið félaganna séu/hafi verið og ljósi varpað á starfsemi með því að leita til nokkurra einstaklinga sem gætu verið tengiliðir og búið yfir upplýsingum um félögin, e.t.v. myndum o.fl.

Points

Lokaafurð verkefnisins væri skrá yfir félögin sem lægi frammi og hefði að geyma upplýsingar um starfandi félög, hvað þau hafa á stefnuskrá sinni, hvernig þau starfa, stjórn og hvað nýir íbúar þurfi að gera til að gerast meðlimir. Skráning félaga gæti eflt félagslíf í þorpinu. Upplýsingar um félög sem áður störfuðu gefa innsýn í sögu þorpsins.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information